Staðaspár -

Sýna flokk veðurstöðva

Finna spá fyrir veðurstöð

Stöðvalisti
 

Textaspá fyrir Suðausturland

Suðausturland

Norðan og norðaustan 3-10 og skýjað að mestu, en stöku skúrir eða él á morgun, einkum austantil. Hiti um og við frostmark.
Spá gerð: 17.11.2026 21:33. Gildir til: 19.11.2026 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:
Norðaustlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og skýjað með köflum, en dálítil él á Suður- og Norðausturlandi. Hiti við frostmark syðst, en annars 0 til 8 stiga frost.

Á föstudag:
Suðaustan 8-13 og lítilsháttar rigning eða slydda með köflum sunnan- og vestanlands, en annars hægviðri og úrkomulaust. Frostlaust syðst, en annars 0 til 14 stiga frost, kaldast í innsveitum norðaustanlands.

Á laugardag:
Austlæg átt 10-15 sunnantil og dálítil rigning eða slydda, en hægari og úrkomulaust norðantil. Bætir í vind og úrkomu sunnanlands um kvöldið. Hlýnar heldur í veðri.

Á sunnudag:
Ákveðin suðaustan átt og rigning eða slydda, en styttir upp norðantil síðdegis. Hiti 1 til 9 stig.

Á mánudag og þriðjudag:
Útlit fyrir suðaustan- og austanátt með rigningu sunnan- og vestantil, en úrkomulítið norðanlands. Hiti breytist lítið.
Spá gerð: 17.11.2026 20:22. Gildir til: 24.11.2026 12:00.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica