Staðaspár -

Sýna flokk veðurstöðva

Finna spá fyrir veðurstöð

Stöðvalisti
 

Textaspá fyrir allt landið

Veðurhorfur á landinu

Austan 10-18 m/s sunnan- og suðaustantil og dálítil slydduél. Annars mun hægari austlæg eða breytileg átt og yfirleitt þurrt.
Suðlæg eða breytileg átt 5-10 á morgun og víða bjart, en skúrir eða slydduél við suðaustur- og austurströndina. Slydduél eða él norðantil annað kvöld. Frost 1 til 10 stig, kaldast í innsveitum norðaustanlands, en hiti kringum frostmark við suðurströndina.
Spá gerð: 17.11.2026 07:45. Gildir til: 19.11.2026 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:
Norðaustlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og víða bjart, en stöku él á Austfjörðum og Ströndum. Frost 0 til 12 stig, kaldast inn til landsins.

Á fimmtudag:
Norðlæg eða breytileg átt 3-8 og sums staðar dálítil él, en annars skýjað með köflum og að mestu þurrt. Frostlaust syðst, en annars 0 til 8 stiga frost.

Á föstudag:
Vaxandi suðaustanátt og dálítil rigning eða slydda, einkum við ströndina, en þurrt að kalla á Norðurlandi. Hiti breytist lítið.

Á laugardag:
Ákveðin suðaustan átt og rigning eða slydda um allt land. Hlýnar heldur í veðri.

Á sunnudag:
Líkur á suðlægri átt og rigningu eða slyddu sunnan- og vestanlands, en styttir upp og léttir til norðan- og austanlands. Hiti 1 til 8 stig.

Á mánudag:
Útlit fyrir austanátt með dálítilli rigningu, en þurrt og bjart norðantil. Hiti breytist lítið.
Spá gerð: 16.11.2026 20:53. Gildir til: 23.11.2026 12:00.

Hugleiðingar veðurfræðings

Djúp lægð liggur nánast kyrrstæð sunnan við landið, en grynnist með deginum. Þessi lægð veldur allhvassri austanátt með slydduéljum í dag við suður- og suðausturströndina. Annars er útlit fyrir mun hægari austlæga eða breytilega átt og víða bjart og yfirleitt þurrt. Víða frost, en við frostmark sunnantil.

Á miðvikudag og fimmtudag er útlit fyrir hæglætis veður og að mestu þurrt, en stöku él við norður- og austurströndina. Fremur kalt.
Spá gerð: 17.11.2026 06:26. Gildir til: 18.11.2026 00:00.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica