Hæg austlæg átt og bjartviðri, frost 1 til 8 stig.
Þykknar upp á morgun, dálitlar skúrir eða slydduél eftir hádegi. Hlýnar í veðri.
Spá gerð: 18.11.2026 15:09. Gildir til: 20.11.2026 00:00.
Á föstudag:
Suðaustan 5-13 m/s suðvestan- og vestantil og dálitlar skúrir eða él, hiti um eða yfir frostmarki. Hægari á Norður- og Austurlandi, þurrt að mestu og frost 0 til 8 stig. Bætir í vind suðvestanlands um kvöldið.
Á laugardag:
Austan og suðaustan 8-15, en hægari norðanlands. Bjart með köflum og frost víða 0 til 7 stig, en lítilsháttar snjókoma eða rigning og heldur mildara við suðurströndina. Fer að hvessa suðvestantil um kvöldið.
Á sunnudag:
Hvöss suðaustanátt suðvestan- og vestantil, annars hægari vindur. Rigning með köflum og hlýnar í veðri, en þurrt að mestu um landið norðanvert.
Á mánudag og þriðjudag:
Suðaustan- og austanátt og vætusamt, en úrkomulítið á Norður- og Norðvesturlandi. Fremur milt.
Spá gerð: 18.11.2026 08:52. Gildir til: 25.11.2026 12:00.